Sjálfbærni í sólarorku
Heildarlausnir í sólarorku — frá ráðgjöf til uppsetningar. Framleiddu þína eigin hreinu orku, beint frá sólinni.
Sérfræðingar í sólarorku
Sólspor býður upp á heildarlausnir í sólarorku, frá ráðgjöf til uppsetningar. Við tryggjum öruggar, endingargóðar og afkastamiklar lausnir fyrir viðskiptavini — og gerum orkuskiptin einföld fyrir þig.
Forgreining — Tilboð — Uppsetning
Hvert verkefni er einstakt. Við greinum aðstæður og bjóðum þá lausn sem hentar best — þök eru mismunandi og ekki víst að hefðbundnar sólarsellur henti alltaf.

Fyrir heimili
Knýðu heimilið með hreinni, endurnýjanlegri sólarorku og lækkaðu rafmagnskostnað. Við sjáum um allt frá ráðgjöf til uppsetningar.

Fyrir sumarbústaði
Sjálfbær bústaður, óháður dreifikerfinu. Sólarsellur og rafhlöður tryggja afl allan ársins hring — líka utan alfaraleiðar.

Fyrir fyrirtæki
Geymið umframorku og lækkið rekstrarkostnað. Háþróuð rafhlöðukerfi tryggja ótruflaða aflgjöf — líka í rafmagnsleysi.
Af hverju Sólspor?
Við brennum fyrir sólarorku og fylgjum verkefninu eftir frá forgreiningu til uppsetningar — með þína hagsmuni að leiðarljósi.

Fagmennska
Við brennum fyrir sólarorku og höfum þína hagsmuni að leiðarljósi.
Forgreining verkefna
Hvert verkefni er einstakt — við finnum lausnina sem hentar best hverju sinni.
Mismunandi þök
Ekki ein lausn sem hentar öllum. Þess vegna erum við með úrval af birgjum.
Nýsköpun
Við fylgjumst vel með þróuninni og bjóðum samkeppnishæfar vörur og þjónustu.
Uppsetning
Við sjáum um verkefnið frá forgreiningu alla leið til uppsetningar.
Þjónusta
Við yfirförum kerfið fyrir þig, t.d. árlega, svo afköstin haldist í hámarki.
Innsýn í nokkur verkefni
Hvort sem um ræðir sumarbústað, heimili eða fyrirtæki — við klárum verkið frá forgreiningu til uppsetningar.
„Samstarfið við Sólspor var frábært — kerfið snarlækkaði rafmagnsreikninginn og gerir okkur sjálfbær stóran hluta ársins."
Algengar spurningar
Hvað er sólarorka?
Sólarorka er endurnýjanleg orka sem virkjuð er með því að breyta geislun sólar beint í rafmagn með sólarsellum — hrein, óþrjótandi og umhverfisvæn.
Munu sólarsellur lækka rafmagnsreikninginn minn?
Ekki spurning. Með því að framleiða eigið rafmagn minnkar þú það rafmagn sem þú þarft að kaupa.
Þarf ég rafhlöðulausnir?
Það er misjafnt. Almennt mælum við með því fyrir heimili og sumarbústaði, þar sem umframframleiðsla fer inn á rafhlöður til síðari notkunar, t.d. á kvöldin.
Hver er endingartími sólarsella?
Framleiðendur miða við um 30 ár. Longi-sellurnar eru með 88,85% virkni eftir 30 ár. Regluleg þrif skipta máli fyrir endingu og orkuframleiðslu.
Hvað kostar svona lausn?
Mjög misjafnt hvað hentar hverjum og einum. Heyrðu í okkur og við skoðum málið með þér.
Byrjum orkuskiptin þín
Sendu okkur línu og við finnum réttu lausnina fyrir þig.
