Stórsniðug lausn frá norskum frumkvöðli. Lágreistar lóðréttar sólarsellur sem henta vel á flöt þök og þarf ekki að festa niður.

Hámarksframleiðsla þegar orkuþörfin er mest
Lóðréttu tvíhliða (bifacial) sellurnar framleiða mestu orkuna kvölds og morgna þegar sólin stendur lágt — sem passar fullkomlega við daglega orkunotkun heimila og fyrirtækja.
Snjöll hönnun sem sigrar íslenska veturinn
Lóðrétt uppsetning þýðir að snjór safnast ekki ofan á sellurnar. Kerfið nýtir endurkast ljóss frá snjónum (albedo-áhrif) til að auka framleiðni og lágmarkar vindálag með loftflæði.
Einföld uppsetning og fjölhæf nýting
Kerfið er létt og krefst engrar festingar í gegnum þakdúkinn. Lóðrétta hönnunin skilur eftir rými á flötum þökum fyrir gróður eða viðhald.
Notaðar eru lóðréttar en lágar sólarsellur sem eru tvíhliða (bifacial), þeim raðað á grindur sem er einfalt og fljótlegt að setja upp. Grindurnar mynda massa svo ekki þarf að festa þær niður — hver staðsetning er reiknuð út með tilliti til íslenskrar veðráttu.
- ✓Hentar vel á flöt þök
- ✓Hentar vel á grasþök
- ✓Hentar vel á malar-/steinaþök
- ✓Hentar vel fyrir austur/vestur uppsetningar

Algengar spurningar
Hentar þetta íslenskum veðurskilyrðum?
Já, ef fjöldi grinda er nægjanlegur til að mynda nægilegan massa fyrir íslenska veðráttu.
Er þetta dýrara en hefðbundið sólar-kerfi?
Þessi lausn hentar oft á stöðum þar sem hefðbundin sólarkerfi koma ekki til greina, t.d. á gras- og/eða steinaþökum.
Hentar austur/vestur uppsetning á Íslandi?
Já, hún hentar vel á sumrin, vorin og haustin. Gott getur verið að snúa hluta sellanna í suður fyrir jafnari framleiðslu.
Sólspor býður upp á gott úrval rafhlöðulausna og heildarkerfi fyrir heimili og fyrirtæki – allt frá smærri geymslulausnum yfir í kerfi með aflgjöfum og stýringum fyrir orkunýtingu og afltoppa.
Heyrðu í okkur og við hjálpum þér að finna lausn sem hentar þér.

Fáðu ráðgjöf og tilboð
Við greinum, hönnum og bjóðum lausn sem hentar þínum aðstæðum. Ekki hika við að heyra í okkur.
