Sólarorka fyrir sumarbústaði
Sjálfbær bústaður, mögulega óháður dreifikerfinu — afl allan ársins hring. Orkan safnast á virkum dögum og bíður þín þegar þú kemur.
Í grunninn er þetta sama vinnan og fyrir heimili: við byrjum á forgreiningu, metum aðstæður og reiknum út rétta stærð á kerfinu.
En bústaðir hafa einn stóran kost. Notkunin er sveiflukennd — mest um helgar og í fríum, minnst á virkum dögum. Á meðan enginn er í bústaðnum heldur sólin áfram að framleiða, og orkan safnast inn á rafhlöðurnar. Þannig er hægt að nýta virku dagana til að byggja upp forða fyrir helgina.
Þar sem tenging við dreifikerfið er dýr eða ómöguleg er sólarorka með rafhlöðu oft einfaldlega besta lausnin — og hún kemur í staðinn fyrir ljósavél.

Safnað í viku — notað um helgi
Á virkum dögum, þegar bústaðurinn er tómur, ganga aðeins grunntækin: frystir, kæliskápur, vöktun, hitastýring og hleðsla. Umframorkan fer öll inn á rafhlöðurnar.
Þegar fólk kemur um helgina er forðinn til staðar fyrir ljós, vatnspumpu, heitan pott, hleðslu og annað sem fylgir viðveru. Þetta þýðir að bústaður kemst oft upp með minna kerfi en heimili með sömu heildarnotkun — því tíminn vinnur með þér.
- ✓Grunntæki ganga alla vikuna — frystir, kælir, vöktun
- ✓Orkan safnast í rafhlöður á virkum dögum
- ✓Forði til staðar fyrir viðveru um helgar og í fríum
- ✓Frostvörn og hitastýring þótt enginn sé á staðnum
- ✓Kemur í staðinn fyrir ljósavél — hljóðlaust og viðhaldslítið

Hvað þurfum við að vita?
Sama undirbúningsvinna og fyrir heimili — en með sérstakri áherslu á notkunarmynstrið og hvort bústaðurinn er tengdur dreifikerfinu.
Staðsetning og þakgerð
Hvar bústaðurinn er, þakgerð og klæðning — bárujárn, pappi, þakdúkur eða timbur. Klæðningin ákvarðar festingaraðferð og hvaða selluvörur koma til greina.
Þakhalli, stefna og skygging
Hallagráða og stefna þaksins, ásamt skyggingu — bústaðir standa oft í skógi eða undir hlíð, sem hefur mikil áhrif á framleiðslu.
Burðarþol þaksins
Bústaðir eru oft léttbyggðir. Byggingatæknifræðingur eða verkfræðingur reiknar burðarþol með snjó- og vindálagi og kemur eftir atvikum með tillögur að styrkingum — eða við veljum léttari þunnfilmu-lausn.
Notkun og viðvera
Hversu oft bústaðurinn er í notkun, hvað gengur þegar enginn er á staðnum, og hvaða tæki eru notuð við viðveru. Þetta ræður stærð rafhlöðunnar.
Tenging við dreifikerfi
Hvort bústaðurinn er tengdur, hvort tenging er í boði og hvað hún kostar. Ótengdur bústaður þarf stærri rafhlöðu og öðruvísi kerfishönnun.
Framtíðaráform
Heitur pottur, viðbygging, rafbíll eða aukin viðvera. Það sem kemur síðar á að hafa áhrif á stærðina núna.
Þjónusta og eftirfylgni
Við hverfum ekki eftir uppsetningu. Árleg yfirferð heldur framleiðslunni í hámarki, og fjarvöktun sýnir þér stöðu rafhlöðunnar þótt þú sért ekki á staðnum.
Sömu tvær leiðir
Sömu lausnir og fyrir heimili: Halo PV fyrir einfalt kerfi, Aura sem heildarlausn.
HYXI Halo PV
Halo PV er lítið, samþætt Micro ESS kerfi fyrir eins fasa bústaði. Sólarsellurnar tengjast beint inn á eininguna, sem sameinar inverter og rafhlöðu — einföld uppsetning og lítið viðhald.
Dæmigert kerfi er fjórar sólarsellur. Það heldur grunntækjum gangandi alla vikuna og byggir upp forða fyrir helgina.
- ✓Fyrir eins fasa bústaði
- ✓Dæmigert kerfi: 4 sólarsellur
- ✓Inverter og rafhlaða í einni einingu
- ✓Allt að 10.000 hleðsluhringir · IP66
- ✓Heldur grunntækjum gangandi milli heimsókna
HYXI Aura
Aura er heildarlausn fyrir allan bústaðinn og hentar bæði eins fasa og þriggja fasa. Inverter, rafhlaða, orkustjórnun og varaafl í einni einingu — engin sérstök gátt eða varaaflskassi.
Rafhlöðurnar eru staflanlegar, svo hægt er að byrja með grunnstærð og stækka síðar — til dæmis þegar heitur pottur eða aukin viðvera kemur til. Fyrir ótengda bústaði er þetta lausnin sem gerir raunverulegt sjálfstæði mögulegt.
- ✓Fyrir eins fasa og þriggja fasa
- ✓Inverter, rafhlaða og stýring í einni einingu
- ✓Hentar ótengdum bústöðum utan dreifikerfis
- ✓Staflanleg rafhlaða — stækkar með þörfum
- ✓Snjöll orkustjórnun og fjarvöktun
Við hverfum ekki eftir uppsetningu
Sólarsellukerfi er langtímafjárfesting og afköstin eiga að haldast í hámarki alla þá 25–30 ár sem kerfið vinnur. Þess vegna fylgjum við verkefninu eftir að uppsetningu lokinni.
Við yfirförum kerfið fyrir þig, t.d. árlega: mælum afköst, skoðum festingar og tengingar og athugum hvort sellurnar þurfi þrif. Regluleg þrif skipta máli fyrir bæði endingu og orkuframleiðslu.
Fyrir bústaði er fjarvöktun sérstaklega verðmæt: þú sérð stöðu rafhlöðunnar og framleiðsluna þótt þú sért ekki á staðnum, og getur brugðist við áður en þú kemur.
- ✓Árleg yfirferð á afköstum og tengingum
- ✓Þrif á sellum — skiptir máli fyrir framleiðslu
- ✓Vöktun í appi — þú sérð framleiðsluna í rauntíma
- ✓Aðstoð og ráðgjöf ef eitthvað kemur upp
- ✓Stækkun síðar — við þekkjum kerfið þitt

Frá fyrirspurn til uppsetningar
Þegar upplýsingarnar liggja fyrir reiknum við út fjölda sella, uppsett afl og stærð rafhlöðugeymslu — með það að markmiði að kerfið sé nógu stórt, en ekki of stórt.
Gefðu verkefninu tíma. Áður en tilkynnt er til byggingarfulltrúa sveitarfélagsins þarf byggingatæknifræðingur eða verkfræðingur að reikna burðarþol þaksins — þeir útreikningar, ásamt tillögum um styrkingar ef þeirra er þörf, fylgja tilkynningunni. Sé bústaðurinn tengdur dreifikerfinu þarf einnig að tilkynna tenginguna, og rafvirki gengur frá tengingu og skilar skýrslu.
Best er að byrja samtalið tímanlega — helst veturinn eða vorið fyrir það sumar sem kerfið á að vera í notkun.
Fáðu ráðgjöf og tilboð
Við greinum, hönnum og bjóðum lausn sem hentar þínum aðstæðum. Ekki hika við að heyra í okkur.
