Ferlið
Frá fyrstu fyrirspurn til fullbúins kerfis — við leiðum þig í gegnum hvert skref. Góður undirbúningur er lykilatriði og þar byrjar allt.
Vel undirbúið verkefni skilar sér alla leið
Sólarsellukerfi er langtímafjárfesting sem á að skila í 25–30 ár. Þess vegna byrjum við aldrei á verðskrá, heldur á forgreiningu.
Því betri upplýsingar við höfum í upphafi, því nákvæmara verður tilboðið — og því færri óvæntir hlutir koma upp við uppsetningu. Rangt stærðarval, vanmetið burðarþol eða óskoðuð skygging eru dýr mistök sem forgreining kemur í veg fyrir.
Frá fyrirspurn til fullbúins kerfis
Forgreining
Við förum yfir staðsetningu, þakgerð og klæðningu, þakhalla og stefnu, skyggingu, burðarþol og orkunotkun síðustu 12 mánuði — og metum bestu lausnina.
Hönnun og tilboð
Við reiknum fjölda sella, uppsett afl, stærð invertera og rafhlöðugeymslu. Þú fær skýrt tilboð með áætlaðri ársframleiðslu — nógu stórt kerfi, en ekki of stórt.
Leyfi og tilkynningar
Burðarþolsútreikningar verkfræðings fylgja tilkynningu til byggingarfulltrúa sveitarfélagsins. Tenging er tilkynnt til dreifiveitunnar. Við sjáum um þennan hluta.
Uppsetning
Vottaðir fagmenn setja kerfið upp, rafvirki gengur frá tengingu og skilar skýrslu. Kerfið er gangsett og þú fær aðgang að vöktun.
Þjónusta og eftirfylgni
Við yfirförum kerfið fyrir þig, t.d. árlega, svo afköstin haldist í hámarki. Regluleg þrif skipta máli fyrir endingu og orkuframleiðslu.
Hvað er skoðað í forgreiningu?
Forgreiningin er undirbúningsvinnan sem ákvarðar hvort verkefnið verður vel heppnað. Þú þarft ekki að hafa allt á hreinu — við hjálpum þér að finna það sem vantar.
Staðsetning og þakgerð
Hvar húsið er á landinu, hvort þakið er hallandi eða flatt, og úr hverju klæðningin er — bárujárn, saumað málmþak, þakdúkur eða tígulsteinn. Klæðningin ákvarðar festingaraðferð og hvaða selluvörur koma til greina.
Þakhalli, stefna og skygging
Hallagráða og í hvaða átt þakið hallar, ásamt skyggingu frá strompum, kvistum, trjám eða nálægum byggingum. Suðurhalli 20–40° gefur mesta ársframleiðslu.
Burðarþol þaksins
Þakið þarf að þola þyngd sella, festinga og snjó- og vindálag. Byggingatæknifræðingur eða verkfræðingur reiknar burðarþolið og kemur eftir atvikum með tillögur að styrkingum ef þarf.
Orkunotkun síðustu 12 mánuði
Kílóvattstundir á mánuði síðustu 12 mánuði — það má nálgast á vef orkusölunnar. Ársnotkunin og sveiflurnar milli mánaða eru grunnurinn undir allri stærðarákvörðun.
Rafmagnstafla og fasar
Hvort húsið er eins fasa eða þriggja fasa og hvernig taflan er uppbyggð. Það ræður því hvaða lausn kemur til greina — einfalt Halo PV kerfi, Aura heildarlausn eða C&I kerfi.
Notkunarmynstur og framtíðaráform
Hvenær dagsins orkan er notuð, hvað þarf að vera í gangi í rafmagnsleysi, og hvort til stendur að fá rafbíl, varmapumpu eða heitan pott. Það sem kemur síðar á að hafa áhrif á stærðina núna.
Þetta tekur tíma — og það er eðlilegt
Sólarsellukerfi verður ekki til á einni viku. Auk forgreiningar og hönnunar þarf að tilkynna framkvæmdina til byggingarfulltrúa sveitarfélagsins — með burðarþolsútreikningum verkfræðings og tillögum um styrkingar ef þeirra er þörf. Í ákveðnum tilvikum þarf byggingarleyfi, sérstaklega þegar þakinu er breytt eða um samþætt sólarselluþak er að ræða.
Þá þarf að tilkynna tengingu til dreifiveitunnar, rafvirki þarf að ganga frá tengingu og skila skýrslu, og afhendingartími á sellum, inverter og rafhlöðum getur verið nokkrar vikur. Ef húsið er í hverfi með sérstökum útlitskröfum, eða um friðað eða eldra hús að ræða, getur ferlið tekið lengri tíma.
Við sjáum um þennan hluta fyrir þig og höldum þér upplýstum. Best er að byrja samtalið tímanlega — helst veturinn eða vorið fyrir það sumar sem kerfið á að vera í notkun.
- 01Forgreining og hönnun
- 02Burðarþolsútreikningar verkfræðings
- 03Tilkynning eða leyfi frá byggingarfulltrúa
- 04Tilkynning um tengingu til dreifiveitu
- 05Afhendingartími á búnaði — nokkrar vikur
- 06Uppsetning, tenging og skýrsla rafvirkja
Fáðu ráðgjöf og tilboð
Við greinum, hönnum og bjóðum lausn sem hentar þínum aðstæðum. Ekki hika við að heyra í okkur.
