LONGi
Sólarsellur í fremstu röð — Hi-MO X10 með 30 ára afkasta-ábyrgð
LONGi er stærsti sólarselluframleiðandi heims og Hi-MO X10 er nýjasta kynslóðin, byggð á HPBC 2.0 tækni og TaiRay-kísilskífunni. Sellan tryggir hámarks orkuframleiðslu með nýstárlegri tækni sem nær einstökum árangri í daufri birtu — harðgerð hönnun sem hentar sérstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður og skilar mikilli nýtni jafnvel þegar sólin stendur lágt.
Sólarsellur eru langtímafjárfesting og þess vegna skiptir endingin öllu máli. Hi-MO X10 kemur með 30 ára afkasta-ábyrgð og heldur 88,85% af upphaflegu afli eftir 30 ár — kerfið heldur því áfram að skila tekjum langt eftir að það hefur greitt sig upp.

Kerfi sem skilar í áratugi
Sólarsellur eru fjárfesting sem greiðir sig upp og heldur svo áfram að skila. LONGi tryggir afköstin með 30 ára ábyrgð.
Byltingarkennd nýtni
Með nýrri HPBC 2.0 tækni og TaiRay-kísilskífu nær sellan hámarksafköstum og framleiðir meiri orku á hverjum fermetra en hefðbundnar lausnir.
Langtímafjárfesting með 30 ára ábyrgð
Aðeins 1% rýrnun fyrsta árið og 0,35% á ári eftir það. Eftir 30 ár heldur sellan enn 88,85% af upphaflegu afli — með tryggingu framleiðanda.
Hönnuð fyrir íslenskar aðstæður
Hi-MO X10 skilar framúrskarandi árangri í daufri birtu og lágri sól. Bakskauta-sellurnar „vakna fyrr og fara seinna að sofa" en hefðbundnar sellur.
Aukin ending og fegurð
Sterkbyggð hönnun án sýnilegra tengivíra (0BB) tryggir bæði glæsilegt svart útlit á þakið og langan líftíma við krefjandi veðurskilyrði.
Lágmarks áhrif skugga: Hi-MO X10 notar háþróaða tækni sem lágmarkar orkutap þótt hluti sellunnar lendi í skugga frá strompum, trjám eða öðrum fyrirstöðum. Í stað þess að heil röð sella slái út er aðeins sá hluti sem skyggist tekinn úr sambandi.
- ✓Staðbundin óhreinindi
- ✓Fuglaskítur
- ✓Laufblöð
- ✓Snjór yfir hluta af sólarsellunni

Tæknilegar upplýsingar
Raunupplýsingar og uppsetningarleiðir ráðast af verkefni og verða staðfest í tilboði.
| Afkasta-ábyrgð | 30 ár (línuleg) |
| Afl eftir 30 ár | 88,85% af upphaflegu afli |
| Rýrnun fyrsta árið | Aðeins 1% |
| Árleg rýrnun eftir það | 0,35% |
| Áætlaður líftími | 30 ár eða meira |
| Sellutækni | HPBC 2.0 (N-type bakskauta) + TaiRay-kísilskífa |
| Framhlið | 0BB — engir sýnilegir tengivírar |
| Hitastigsstuðull afls | −0,26 %/°C |
| Skuggavörn | Shading Optimizer — aðeins skyggð sella tekin úr sambandi |
| Vörn gegn veðri | Hert gler með glampavörn, IP68 tengibox |
Algengar spurningar
Hversu lengi eru sólarsellur að endast?
Sólarsellur frá LONGi eru með um 30 ára líftíma og rýrnunin er mjög lítil. Nýtni sólarsellanna eftir 30 ár er 88,85%, sem verður að teljast mjög gott — og þær halda áfram að framleiða eftir það.
Er þetta góð langtímafjárfesting?
Já. Kerfið greiðir sig upp á broti af líftímanum og heldur svo áfram að skila orku í áratugi. Með 30 ára afkasta-ábyrgð og aðeins 0,35% árlegri rýrnun er hægt að reikna út orkuframleiðslu — og sparnað — langt fram í tímann með mikilli vissu.
Hvað þýðir 88,85% eftir 30 ár?
Að sellan skilar enn næstum 89% af upphaflegu afli eftir 30 ár í notkun. Rýrnunin er 1% fyrsta árið og aðeins 0,35% á ári eftir það — með tryggingu frá framleiðanda.
Hentar Hi-MO X10 íslenskum veðurskilyrðum?
Já heldur betur, vinnur orku fyrr og lengur en hefðbundnar sellur, auk þess sem kuldinn á Íslandi gerir sólarsellur skilvirkari en annars.
Er raunhæft að nota sólarsellur á Íslandi?
Ekki spurning, sellurnar nota sólarljós og geislun frá sólinni til þess að búa til rafmagn. Rafmagnsframleiðsla með sólarsellum er álitlegur kostur á Íslandi ca 8 mánuði ársins.
Þarf mikið viðhald?
Nei. Sólarsellur eru viðhaldslitlar — regluleg þrif skipta helst máli fyrir endingu og orkuframleiðslu. Sólspor býður upp á árlega yfirferð svo afköstin haldist í hámarki.
Sólspor býður upp á gott úrval rafhlöðulausna og heildarkerfi fyrir heimili og fyrirtæki – allt frá smærri geymslulausnum yfir í kerfi með aflgjöfum og stýringum fyrir orkunýtingu og afltoppa.
Heyrðu í okkur og við hjálpum þér að finna lausn sem hentar þér.

Fáðu ráðgjöf og tilboð
Við greinum, hönnum og bjóðum lausn sem hentar þínum aðstæðum. Ekki hika við að heyra í okkur.
