571 2230 solspor@solspor.is Gerplustræti 8, 270 Mosfellsbæ Facebook
Forsíða  /  Aðstæður  /  Fyrir heimili

Sólarorka fyrir heimili

Knúðu heimilið með hreinni, endurnýjanlegri sólarorku og lækkaðu rafmagnskostnað. Við byrjum á forgreiningu og finnum lausn sem passar þínu húsi.

Sólarorka á heimilinu

Við sjáum um allt frá ráðgjöf til uppsetningar. Sólarsellur á þaki heimilisins framleiða rafmagn allan daginn — og með rafhlöðulausn nýtist orkan líka á kvöldin, þegar notkunin er mest.

Heimili eru ólík: þakgerð, halli, skygging, orkunotkun og hvort húsið er eins fasa eða þriggja fasa hefur allt áhrif á hvaða lausn er rétt. Þess vegna er engin ein lausn sem passar öllum — og þess vegna byrjum við aldrei á verðskrá, heldur á forgreiningu.

Fá forgreiningu →

Sólarorka fyrir heimili
Forgreining fyrir heimili

Hvað þurfum við að vita um húsið þitt?

Góður undirbúningur er lykilatriði. Þessar upplýsingar liggja til grundvallar útreikningum á fjölda sella, stærð invertera og rafhlöðugeymslu.

01

Staðsetning og þakgerð

Hvar húsið er á landinu, hvort þakið er hallandi eða flatt, og úr hverju klæðningin er — bárujárn, saumað málmþak, þakdúkur eða tígulsteinn. Klæðningin ákvarðar festingaraðferð.

02

Þakhalli, stefna og skygging

Hallagráða og í hvaða átt þakið hallar, ásamt skyggingu frá strompum, kvistum, trjám eða nálægum húsum. Suðurhalli 20–40° gefur mesta ársframleiðslu.

03

Burðarþol þaksins

Þakið þarf að þola þyngd sella, festinga og snjó- og vindálag. Byggingatæknifræðingur eða verkfræðingur reiknar burðarþolið og kemur eftir atvikum með tillögur að styrkingum ef þarf.

04

Orkunotkun síðustu 12 mánuði

Kílóvattstundir á mánuði síðustu 12 mánuði — það má nálgast á vef orkusölunnar. Ársnotkunin og sveiflurnar milli mánaða eru grunnurinn undir allri stærðarákvörðun.

05

Eins fasa eða þriggja fasa?

Hvernig heimtaugin og rafmagnstaflan eru uppbyggðar. Það ræður því hvaða lausn kemur til greina — einfalt Halo PV kerfi eða heildarlausn eins og Aura.

06

Notkunarmynstur og framtíðaráform

Hvenær dagsins orkan er notuð og hvort til stendur að fá rafbíl, varmapumpu eða heitan pott. Það sem kemur síðar á að hafa áhrif á stærðina núna.

07

Þjónusta og eftirfylgni

Við hverfum ekki eftir uppsetningu. Árleg yfirferð á afköstum, tengingum og þrifum heldur framleiðslunni í hámarki — og þú fylgist með í rauntíma í appi.

Lausnir frá Hyxi

Tvær leiðir fyrir heimili

Heimili þurfa ekki alltaf stórt kerfi. Sumir vilja einfalda lækkun á rafmagnskostnaði, aðrir heildarlausn með varaafli. Við bjóðum bæði.

Einfalt

HYXI Halo PV

Einföld lækkun rafmagnskostnaðar · eins fasa · 4 sellur

Halo PV er lítið, samþætt Micro ESS kerfi fyrir eins fasa húsnæði. Sólarsellurnar tengjast beint inn á eininguna, sem sameinar inverter og rafhlöðu — engin flókin uppsetning, engin stór kerfishönnun.

Dæmigert kerfi er fjórar sólarsellur. Þetta er einfaldasta leiðin til að byrja: orkan sem framleidd er yfir daginn geymist og nýtist á kvöldin, og rafmagnsreikningurinn lækkar frá fyrsta mánuði.

  • Fyrir eins fasa heimili
  • Dæmigert kerfi: 4 sólarsellur
  • Inverter og rafhlaða í einni einingu
  • Allt að 10.000 hleðsluhringir · IP66
  • Einföld og fljótleg uppsetning
Heildarlausn

HYXI Aura

Heildarlausn · eins fasa og þriggja fasa · varaafl

Aura er heildarlausn fyrir allt heimilið og hentar bæði eins fasa og þriggja fasa húsnæði. Kerfið er sannkölluð all-in-one eining: inverter, rafhlaða, orkustjórnun og varaafl í einni heild — engin sérstök gátt eða varaaflskassi til viðbótar.

Rafhlöðurnar eru staflanlegar, svo þú getur byrjað með grunnstærð og stækkað síðar þegar þörfin vex, t.d. þegar rafbíll eða varmapumpa kemur til. Falli rafmagn út tekur kerfið yfir og heimilið heldur áfram að virka.

  • Fyrir eins fasa og þriggja fasa heimili
  • Inverter, rafhlaða og stýring í einni einingu
  • Varaafl fyrir allt heimilið — engin aukagátt
  • Staflanleg rafhlaða — stækkar með þörfum
  • Snjöll orkustjórnun og vöktun

Meira um Hyxi lausnirnar →

Þjónusta og eftirfylgni

Við hverfum ekki eftir uppsetningu

Sólarsellukerfi er langtímafjárfesting og afköstin eiga að haldast í hámarki alla þá 25–30 ár sem kerfið vinnur. Þess vegna fylgjum við verkefninu eftir að uppsetningu lokinni.

Við yfirförum kerfið fyrir þig, t.d. árlega: mælum afköst, skoðum festingar og tengingar og athugum hvort sellurnar þurfi þrif. Regluleg þrif skipta máli fyrir bæði endingu og orkuframleiðslu.

Þú fær líka aðgang að vöktun þar sem þú sérð framleiðsluna í rauntíma — og við getum aðstoðað í fjarvinnu ef eitthvað kemur upp.

  • Árleg yfirferð á afköstum og tengingum
  • Þrif á sellum — skiptir máli fyrir framleiðslu
  • Vöktun í appi — þú sérð framleiðsluna í rauntíma
  • Aðstoð og ráðgjöf ef eitthvað kemur upp
  • Stækkun síðar — við þekkjum kerfið þitt
Þjónusta og eftirfylgni
Næstu skref

Frá fyrirspurn til uppsetningar

Þegar við höfum upplýsingarnar reiknum við út fjölda sella, uppsett afl, stærð invertera og hvort rafhlöðugeymsla sé hagkvæm — með það að markmiði að kerfið sé nógu stórt, en ekki of stórt.

Gefðu verkefninu tíma. Áður en tilkynnt er til byggingarfulltrúa sveitarfélagsins þarf byggingatæknifræðingur eða verkfræðingur að reikna burðarþol þaksins — þeir útreikningar, ásamt tillögum um styrkingar ef þeirra er þörf, fylgja tilkynningunni. Þá þarf að tilkynna tengingu til dreifiveitunnar og fá rafvirkja til að ganga frá tengingu og skila skýrslu. Afhendingartími á búnaði getur verið nokkrar vikur.

Best er að byrja samtalið tímanlega — helst veturinn eða vorið fyrir það sumar sem kerfið á að vera í notkun.

Senda fyrirspurn → Skoða ferlið

Tilbúin/n að byrja?

Fáðu ráðgjöf og tilboð

Við greinum, hönnum og bjóðum lausn sem hentar þínum aðstæðum. Ekki hika við að heyra í okkur.

Sími571 2230
Netfangsolspor@solspor.is
Póstlisti

Fylgstu með sólarorku á Íslandi

Stuttir póstar um nýjar lausnir, raunverkefni og hvað borgar sig í íslenskum aðstæðum. Engin dagleg skilaboð — bara þegar við höfum eitthvað að segja.

Við sendum staðfestingarpóst fyrst. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.